|
Thursday, 22 July 2010 14:16 |
|
Sumarhátíð SKB verður nú um helgina við hótel Eldborg á Snæfellsnesi. Hátíðin verður með hefbundnu sniði þar sem útsýnisflugið verður á sínum stað auk þess sem grillveislur verða bæði á föstudags- og laugardagskvöldi. Ingó veðurguð mun skemmta félagsmönnum á föstudagskvöldinu og á laugardagskvöldinu verður bingó með fjölda veglegra vinninga.
Dagskrá sumarhátíðarinnar verður sem hér segir: Föstudagur 23. júlí: 17:00 Mótssvæðið opnað 19:00 Grillveisla: Hamborgarar og pylsur (drykkir á ábyrgð hvers og eins) 20:30 Kvöldvaka með Ingó veðurguð Laugardagur 24. júlí: 13:00 Útsýnisflug frá Kaldármelum. Sælgætisregn við hótel Eldborg f.12 ára og yngri strax að loknu flugi 19:00 Grillveisla: Kjöt, kartöflur og salat (drykkir á ábyrgð hvers og eins) 20:30 Fjölskyldubingó 22:30 Varðeldur 24:00 Dagskrárlok
Félagsmönnum hefur verið boðið í veiði um helgina en það er Sigrún Ólafsdóttir bóndi á Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal sem býður félagsmönnum að veiða í Hlíðarvatni.
Nú er um að gera fyrir félagsmenn að skella sér á Snæfellsnesið og muna eftir góða skapinu og ekki væri verra ef allir legðust á eitt um að hafa með sér slatta af góðu veðri. |
|
Monday, 28 June 2010 10:24 |
|
Nú hafa fyrstu íbúarnir komið sér fyrir í Hetjulundi þar sem skógarþröstur nokkur hefur byggt sér hreiður í grunninum. Að sögn þeirra iðnaðarmanna sem nú vinna hörðum höndum að því að gera steypumót klár fyrir fyrstu "steypu" eru foreldrarnir ósköp spakir og láta sér fátt um finnast þó hamarshögg og vélahljóð rjúfi sveitakyrðina. Ljósmyndari SKB náði þessum tveimur myndum af íbúunum í morgun.

|