|
Miðvikudagur, 15 Febrúar 2012 19:24 |
|
Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi krabbameinssjúkra barna leggur SKB sitt af mörkum til að fræða almenning um krabbamein í börnum. Nemendur í 2. og 3. bekk í Grandaskóla komu saman við skólann í morgun og slepptu 400 blöðrum til himins í því skyni að vekja athygli á málstaðnum, en einn drengur úr hópnum er í krabbameinsmeðferð.
Jafnframt hefur SKB dreift að undanförnu um 12.000 póstkortum til ýmissa aðila í landinu þar sem vakin er athygli á einkennum krabbameins í börnum en það eru alþjóðasamtök foreldra barna með krabbamein (ICCCPO), sem SKB er aðili að og alþjóðleg samtök barnakrabbameinslækna (SIOP) sem standa sameiginlega að þessari fræðslu og vitundarvakningu meðal almennings um heim allan.
Staðreyndir:
Á hverju ári greinast 175.000 börn með krabbamein í heiminum og talið er að um 90.000 þeirra láti lífið, eða um 250 börn á dag. Á Íslandi greinast 10-12 börn, á aldrinum 0-18 ára, á ári með krabbamein.

|
|
Miðvikudagur, 15 Febrúar 2012 14:54 |
Alþjóðadagur krabbameinssjúkra barna er í dag - af því tilefni vekja samtök foreldra og lækna krabbameinssjúkra barna um heim allan athygli á málstaðnum og helstu einkennum sem komið geta fram áður en krabbamein greinist í barni. SKB og nemendur í Grandaskóla ætla að sleppa 400 blöðrum til himins nú kl 11 í tilefni dagsins. |