Skip to content
Þú ert hér: Home News
Fréttir
Formlegt samstarf SKB, Krafts og Ljóssins hófst í dag.
Wednesday, 08 September 2010 15:39

p9083034_640x480.jpgÍ dag var skrifað undir samkomulag á milli Ljóssins endurhæfingar og stuðningsmiðstöð, Krafts stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna (SKB) um formlega samvinnu veturinn 2010-2011.

Félögin ætla að bjóða upp á sameiginlega vetrardagskrá fyrir fólk á aldrinum 18-29 ára sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þess. Til að verkefni af þessu tagi geti orðið að veruleika þarf fjárhagslegan stuðning og verður Arion banki bakhjarl verkefnisins fyrsta misserið.
Það voru þau Tómas Hallgrímsson formaður Ljóssins, Ásta Hallgrímsdóttir formaður Krafts, Helga Þóra Eiðsdóttir frá Arion banka og Rósa Guðbjartsdóttir formaður SKB sem skrifuðu undir samninginn í höfuðstöðvum Arion banka í dag.

Fyrsti fundur hópsins verður fimmtudaginn 9. september kl. 19:30-21.30 í Ljósinu að Langholtsvegi 43. Þar verður dagskrá vetrarins kynnt og hópurinn hristur saman.

Hópurinn mun hittast aðra hverja viku á fimmtudögum í vetur og gera sér dagamun. Þetta er tilvalið tækifæri til að hitta hresst og kátt fólk og eiga með því skemmtilega kvöldstund.

p9083047_640x480.jpgRafn Haraldur Rafnsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður hópsins. Rafn starfar á geðsviði Landspítalans við endurhæfingu og er hann íþróttafræðingur að mennt.


Fundirnir í vetur munu fara fram í húsakynnum félaganna eftir þörfum. SKB er til húsa að Hlíðarsmára 14 og Kraftur er til húsa í Skógarhlíð 8 í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands.

Ingólfur Þórarinsson, oftast nefndur Ingó Veðurguð, kemur í heimsókn á fyrsta fundi hópsins og tekur nokkur lög í lok kvölds.
Að lokinni undirskrift stilltu formenn félaganna þriggja ásamt framkvæmdastjórum þeirra, fulltrúa Arion banka og Rafni, umsjónarmanni hópsins sér upp fyrir myndatöku.

Léttar veitingar í boði.

Verið hjartanlega velkomin.

 
Framkvæmdir við Hetjulund ganga vel
Thursday, 26 August 2010 07:38

Framkvæmdir við nýtt hvíldarheimili SKB, Hetjulund, ganga vel og er nú unnið hörðum höndum við að slá upp fyrir veggjum og steypa þá upp.  Einn veggur hefur þegar verið steyptur þar sem "hryggjarsúla" hússins hefur nú risið.  Myndir hafa verið settar hér inn.  Áfram verður fylgst með framvindu verksins hér á heimasíðu SKB.

p8252906.jpg

 
Hjólað til heilla lauk í dag
Saturday, 21 August 2010 17:15

Hringferðinni "Hjólað til heilla" lauk í dag þegar þeir félagar, Haraldur Hreggviðsson og Haraldur Helgason luku ferð sinni í kringum Ísland, annar á reiðhjóli og hinn á "aðstoðarmannabifreið".  Það voru í kringum 60 manns sem tóku á móti þeim félögum og var boðið upp á veglegar veitingar.  Rósa Guðbjartsdóttir formaður SKB þakkaði þeim félögum, sem og Lionsklúbbi Njarðvíkur, fyrir sitt frábæra framlag til krabbameinssjúkra barna og færði þeim veglega blómvendi í þakklætisskyni.  Myndirnar hér að neðan voru teknar í dag og verða þær ásamt fleirum settar inn á myndasíðuna hér á heimasíðu SKB eftir helgina.

p8212704_640x480.jpg

p8212740_640x480.jpg

p8212779_640x480.jpg

p8212783_640x480.jpg

p8212787_640x480.jpg

p8212818_640x480.jpg

p8212826_640x480.jpg

 
Lokametrar hjólað til heilla
Friday, 20 August 2010 14:00

Eins og vonandi allir vita er hringferðinni "Hjólað til heilla" að ljúka á morgun, laugardaginn 21. ágúst.  Stefnt er að því að vera við Olís-stöðina í Mosfellsbæ kl. 14.00 á morgun og eru allir sem áhuga hafa á góðum hjólreiðatúr hvattir til að slást í hópinn.  Á myndinni hér að neðan er leiðarlýsing eftir að inn í Reykjavík kemur og getur fólk slegist í hópinn hvar sem er á leiðinni.  Stefnt er að því að koma að skrifstofu SKB í Hlíðasmára 14 kl. 15.00 þar sem boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.

hjolaleid_2010.08.jpg

 
Hjólað til heilla - heimkoma á laugardag
Thursday, 19 August 2010 08:01

004_640x480.jpgNú er „Hjólað til heilla“ að ljúka og stefna þeir félagar, Haraldur og Haraldur, á að koma í bæinn á laugardag í kringum 15.00.  Við hjá SKB ásamt félögum þeirra úr Lionsklúbbi Njarðvíkur ætlum að sjálfsögðu að taka vel á móti þeim, m.a. með því að hjóla með þeim síðasta spölinn.  Stefnan er að vera við Olís-stöðina í Mosfellsbæ kl. 14.00 á laugardag og eru allir sem vettlingi geta valdið hvattir til að slást þar í hópinn.  Þeir sem treysta sér ekki til að hjóla úr Mosfellsbænum í Hlíðasmárann geta komið í hópinn hvar sem er á leiðinni – allt eftir því hvað hverjum hentar.  Endanleg leiðarlýsing verður kynnt hér á heimasíðunni um leið og hún verður ljós.

 

Hópurinn mun síðan koma að skrifstofu SKB í Hlíðasmára 14 upp úr kl. 15.00 og verður boðið upp á léttar kaffiveitingar við komuna.  Öllum er velkomið að kíkja til okkar í Hlíðasmárann á laugardaginn til að fagna árangri þessara góðu manna sem hafa sýnt okkur svo mikinn stuðning síðastliðna daga.

 

Tímasetningar geta að sjálfsögðu breyst þegar nær dregur og verða þær breytingar þá kynntar hér á heimasíðu SKB.

 
Hjólað til heilla gengur vel
Tuesday, 17 August 2010 08:33

011_640x480.jpgHaraldur Hreggviðsson hjólakappi úr Njarðvík er nú í hringferð sinni "hjólað til heilla" og hefur ferðinni miðað vel.  Í gærkveldi náðu Haraldur ásamt aðstoðarmanni sínum Haraldi Helgasyni til Mývatns eftir erfiðasta kafla ferðarinnar frá Egilsstöðum.  Stefnan er tekin á Akureyri í dag en markmiðið er að ljúka hringnum á laugardag við skrifstofu SKB í Hlíðasmára 14.  Hægt er að fylgjast með þeim félögum á facebook-síðunni þeirra.

Settar hafa verið myndir úr ferðinni hér inn á heimasíðu SKB.

Hægt er að styrkja átakið með því að hringja í síma  901-5010 og dragast þá 1000 krónur af símareikningnum en einnig er hægt að leggja inn frjáls framlög á reikn: 1109-05-412828, kt. 440269-6489

 
Hringferðin "Hjólað til heilla" fór af stað í morgun
Tuesday, 10 August 2010 20:18

Haraldur Hreggviðsson hjólreiðakappi úr Njarðvík lagði af stað í morgun frá skrifstofu SKB að viðstöddum góðum hópi fólks.  Með honum í för er félagi hans úr Lionsklúbbi Njarðvíkur, Haraldur Helgason.  Annar félagi þeirra, Víglundur Sverrisson, hjólaði með Haraldi fyrsta spölinn eða til Selfoss. 

01.jpg

02.jpg
Undir kvöld komu þeir Hallarnir svo að Skógum þar sem þeir dvelja í góðu yfirlæti í nótt á Hótel Eddu.

Hægt er að styrkja verkefnið með því að leggja inn á reikning 1109-05-412828 kt. 440269-6489 eða hringja í síma 901-5010 og færast þá 1000 krónur inn á áheitareikninginn.

Hægt er að fylgjast með átakinu á Facebooksíðu þeirra félaga sem ber einfaldlega heitið "Hjólað til heilla"

 
<< Start < Prev 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Next > End >>

Page 1 of 11