Skip to content
Þú ert hér: Home
Formlegt samstarf SKB, Krafts og Ljóssins hófst í dag.
Wednesday, 08 September 2010 15:39

p9083034_640x480.jpgÍ dag var skrifað undir samkomulag á milli Ljóssins endurhæfingar og stuðningsmiðstöð, Krafts stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna (SKB) um formlega samvinnu veturinn 2010-2011.

Félögin ætla að bjóða upp á sameiginlega vetrardagskrá fyrir fólk á aldrinum 18-29 ára sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þess. Til að verkefni af þessu tagi geti orðið að veruleika þarf fjárhagslegan stuðning og verður Arion banki bakhjarl verkefnisins fyrsta misserið.
Það voru þau Tómas Hallgrímsson formaður Ljóssins, Ásta Hallgrímsdóttir formaður Krafts, Helga Þóra Eiðsdóttir frá Arion banka og Rósa Guðbjartsdóttir formaður SKB sem skrifuðu undir samninginn í höfuðstöðvum Arion banka í dag.

Fyrsti fundur hópsins verður fimmtudaginn 9. september kl. 19:30-21.30 í Ljósinu að Langholtsvegi 43. Þar verður dagskrá vetrarins kynnt og hópurinn hristur saman.

Hópurinn mun hittast aðra hverja viku á fimmtudögum í vetur og gera sér dagamun. Þetta er tilvalið tækifæri til að hitta hresst og kátt fólk og eiga með því skemmtilega kvöldstund.

p9083047_640x480.jpgRafn Haraldur Rafnsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður hópsins. Rafn starfar á geðsviði Landspítalans við endurhæfingu og er hann íþróttafræðingur að mennt.


Fundirnir í vetur munu fara fram í húsakynnum félaganna eftir þörfum. SKB er til húsa að Hlíðarsmára 14 og Kraftur er til húsa í Skógarhlíð 8 í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands.

Ingólfur Þórarinsson, oftast nefndur Ingó Veðurguð, kemur í heimsókn á fyrsta fundi hópsins og tekur nokkur lög í lok kvölds.
Að lokinni undirskrift stilltu formenn félaganna þriggja ásamt framkvæmdastjórum þeirra, fulltrúa Arion banka og Rafni, umsjónarmanni hópsins sér upp fyrir myndatöku.

Léttar veitingar í boði.

Verið hjartanlega velkomin.

 
Framkvæmdir við Hetjulund ganga vel
Thursday, 26 August 2010 07:38

Framkvæmdir við nýtt hvíldarheimili SKB, Hetjulund, ganga vel og er nú unnið hörðum höndum við að slá upp fyrir veggjum og steypa þá upp.  Einn veggur hefur þegar verið steyptur þar sem "hryggjarsúla" hússins hefur nú risið.  Myndir hafa verið settar hér inn.  Áfram verður fylgst með framvindu verksins hér á heimasíðu SKB.

p8252906.jpg

 
Fjárframlög

Á döfinni

July 2010 August 2010 September 2010
Mo Tu We Th Fr Sa Su
Week 30 1
Week 31 2 3 4 5 6 7 8
Week 32 9 10 11 12 13 14 15
Week 33 16 17 18 19 20 21 22
Week 34 23 24 25 26 27 28 29
Week 35 30 31

Næstu viðburðir

  • Árshátíð SKB
    October 30, 2010 (19:00 - 20:00)
    (Viðburðir) Árshátíð SKB verður laugardaginn 30. október 2010.  Dagskrá auglýst síðar.
Sjá allt dagatal

Styrktaraðilar