Skip to content
Þú ert hér: Home
Gengið á Esju
Wednesday, 22 May 2013 17:09
Nú er komið að bæjarfjalli Reykjavíkur í gönguröðinni Saman klífum brattann. Gengið verður á Esjuna miðvikudaginn 22. maí. Lagt verður af stað frá Esjustofu kl. 18.00. Allir velkomnir. Ekkert þátttökugjald en frjáls framlög eru vel þegin á reikning verkefnisins: 0301-26-3366, kt. 6305911129.
 
Gengið á bæjarfjöll á Snæfellsnesi á uppstigningardag
Monday, 06 May 2013 14:26

Næstu göngur í tindaverkefninu Saman klífum brattann verða farnar á uppstigningardag, 9. maí, á Ennið við Ólafsvík, Drápuhlíðarfjall við Stykkishólm og síðan Helgafell. Safnast verður saman við íþróttahúsið í Ólafsvík kl. 10 og gengið þaðan á Ennið. Leiðsögumaður af heimaslóð verður með í för, auk Þorsteins Jakobssonar. Gangan tekur um 2 klukkustundir.

Sama dag verður gengið á Drápuhlíðarfjall við Stykkishólm undir forystu Hönnu Jónsdóttur og á Helgafellið strax á eftir. Safnast verður saman við bensínstöðina í Stykkishólmi kl. 14.30 og fólk hvatt til að taka með sér nesti og góða skapið. Gangan á Drápuhlíðarfjall tekur 2-3 klukkustundir og rúma eina klukkustund á Helgafellið.  

Öllum er heimil þátttaka í göngunum þeim að kostnaðarlausu en þátttakendum sem og öðrum bent á að hægt er að styðja verkefnið með frjálsum framlögum inn á reikning SKB - 0301 - 26 - 3366, kt. 630591-1129.

 

 
Fjárframlög

Styrktaraðilar

icelandair_small.jpg

advania.png

Á döfinni

May 2013 June 2013
Mo Tu We Th Fr Sa Su
Week 18 1 2 3 4 5
Week 19 6 7 8 9 10 11 12
Week 20 13 14 15 16 17 18 19
Week 21 20 21 22 23 24 25 26
Week 22 27 28 29 30 31

Næstu viðburðir

Ekki eru neinir viðburðir á döfinni
Sjá allt dagatal