Skip to content
Þú ert hér: Home VON
VON - armbönd og hálsmen

Í Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna er hópur fólks sem hefur staðið í þeim sporum að glíma við veikindi með vonina að vopni – vonina um að lífið komist í réttar skorður á ný – vonina um að veikt barn nái heilsu og fjölskyldan öll muni eiga sínar ljúfu stundir á ný.

 

SKB langar til að færa þjóðinni von og gefa henni um leið tækifæri til að hjálpa félagsmönnum að halda í sína von. Í því skyni eru þessi táknrænu hálsmen og armbönd boðin til sölu. Þú getur smellt á viðeigandi tengil hér til hliðar til að kaupa armbönd eða hálsmen eða hringt í síma 588-7555. Boðið er upp á heimsendingu.

 

Verðlisti:

Armband: 3.000 krónur

Stálhálsmen: 3.500 krónur

Silfurhálsmen: 4.000 krónur
Stálhálsmen m.leðuról: 3.500 krónur

 

VON - armbönd og hálsmen