| Jólakortasíða SKB |
| Mánudagur, 13 Október 2008 13:40 | ||||
|
Jólin nálgast og því þarf að fara að undirbúa sendingu jólakorta til ættingja, vina og viðskiptavina heima og erlendis. Með því að kaupa jólakort SKB stuðlar þú að bættum hag barna með krabbamein og fjölskyldna þeirra hér á landi. Líkt og í fyrra ætlar SKB að selja tvær gerðir af jólakortum. Annarsvegar er um að ræða kort úr seríu sem teiknuð er af Braga Einarssyni og er nú komið að fimmta kortinu sem er með mynd af jólsveininum Pottaskefli. Staðlaður texti inni í kortunum er: Gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Kortin eru seld 10 saman í pakka og kostar hvert kort 100 krónur eða 1.000 krónur pakkinn. Stærð jólakortanna er 115mm x 165mm (hæð x breidd) Hægt er að panta jólakort með því að smella á viðeigandi pöntunarform hér til vinstri á síðunni.
|