| Félagsstarf |
| Laugardagur, 26 Apríl 2008 17:08 |
|
Félagsstarf SKB hefur í gegnum tíðina verið mjög öflugt. Skemmtilegir viðburðir á vegum félagsins eru gríðarlega mikilvægir og gefa félagsmönnum vettvang til að kynnast betur og njóta samvista við jákvæðar og skemmtilegar aðstæður. Stærsti viðuburður félagsins hefur ávallt verið sumarhátíð sem haldin er síðustu helgina í júlí ár hvert. Fyrsta sumarhátíðin var haldin í Hvammi í Vatnsdal árið 1994 en var síðar færð í Fljótshlíðina, fyrst á Hellishóla og síðar í Smáratún. Ákveðin dagskráratriði hafa fylgt hátíðinni frá upphafi og er þar helst að telja útsýnisflugið sem hefur ávallt verið einn af vinsælustu einstöku dagskrárliðum hátíðarinnar. Vinsælasti viðburðurinn í félagsstarfi SKB síðustu ár hafa verið skemmtiferðir með Icelandair. Þá er um að ræða eins dags ferð í skemmtigarð erlendis og hafa þessar ferðir verið gríðarlega vinsælar og færri komist að en vilja. Meðal annara vinsælla viðburða má m.a. nefna árshátíð og jólastund. Hafir þú áhuga á að taka þátt í undirbúningi eða framkvæmd hinna ýmsu verka á vegum SKB smelltu þá hér og fylltu út formið sem birtist. |