| Þjónusta |
| Saturday, 26 April 2008 16:26 |
|
Þjónusta Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna við skjólstæðinga sína er mjög fjölbreytt og er lögð á það áhersla að félagið geri allt það sem í sínu valdi stendur til að létta krabbameinssjúkum börnum og fjölskyldum þeirra lífið. Einn af mikilvægustu þjónustuþáttunum í starfi SKB er að skapa vettvang fyrir einstaklinga sem glíma við krabbamein sem börn og aðstandendur þeirra til að ræða sín á milli um reynslu sína – fá tækifæri til að tala við einhverja sem hafa sömu reynslu. Þetta markmið er nálgast bæði með fjölbreyttum uppákomum sem og reglubundnu starfi stuðningshópa. Annar mikilvægur þáttur í þjónustu félagsins er rekstur tveggja íbúða í Reykjavík og hvíldarheimilis að Flúðum. Íbúðirnar sem reknar eru af Landspítala eru til afnota fyrir fjölskyldur utan af landi sem þurfa að dvelja um lengri eða skemmri tíma í Reykjavík vegna læknismeðferðar barna sinna. Hvíldarheimilið að Flúðum er gríðarlega mikið notað af félagsmönnum og er fyrst og fremst hugsað sem athvarf fyrir fjölskyldur til hvíldar eftir læknismeðferðir eða inn á milli meðferða. Öll skipulagning og framkvæmd á þjónustu félagsins fer að hluta eða öllu leyti í gegnum skrifstofu félagsins. |