Skip to content
Þú ert hér: Home News Ýmsar fréttir Gott mál í Hagaskóla
Gott mál í Hagaskóla
Wednesday, 21 March 2012 13:14

Nemendur í Hagaskóla söfnuðu rúmlega 1,8 milljónum króna á góðgerðardeginum Gott mál í Hagaskóla sem haldinn var 7. mars síðastliðinn. Nemendur ákváðu að styrkja Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna og SPES barnahjálp. Afrakstur söfnunarinnar var afhentur við athöfn í Hagaskóla í dag þar sem Páll Óskar steig meðal annars á svið. Upphæðinni var skipt jafnt á milli SKB og SPES.

2080427802gm201220010.jpg
Rósa Guðbjartsdóttir formaður SKB tók við styrknum fyrir hönd félagsins
og þakkaði höfðinglegt framlag til félagsins.