| Fyrsta skóflustungan að Hetjulundi |
| Tuesday, 11 May 2010 09:10 |
|
Í blíðskaparveðri síðastliðinn sunnudag var fyrsta skóflustungan tekin að nýju hvíldarheimili SKB að Ketilsstöðum. Það voru þær Rósa Guðbjartsdóttir formaður SKB og Gróa Ásgeirsdóttir sem tóku fyrstu skóflustunguna og var að því loknu strax hafist handa við að grafa grunn hússins. Hetjulundur er afrakstur stórkostlegrar landssöfnunar sem Gróa og stöllur hennar í "Á allra vörum" þær Elísabet Sveinsdóttir og Guðný Pálsdóttir stóðu fyrir með miklum myndarbrag á síðasta ári. Í lokahnykk söfnunarinnar sem var í beinni útsendingu á Skjá einum söfnuðust 45 milljónir króna sem svo sannarlega verða vel nýttar í þetta nýja og glæsilega hús. Landsmönnum öllum eru færðar hugheilar þakkir fyrir stuðning sinn við verkefnið sem og allan þann stuðning sem Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna hefur notið í gegnum árin.
Undirbúningur að framkvæmdinni hefur staðið í allan vetur en það var Guðmundur Gunnlaugsson arkitekt sem hannaði húsið og hafa framkvæmdastjóri SKB og Jóhann Ágústsson tæknifræðingur hjá Verkfræðistofu Árborgar verið, ásamt Guðmundi, í hönnunarteyminu sem hefur leitt vinnuna. Bæði Guðmundur og Jóhann hafa gefið alla sína vinnu í verkið og svo sannarlega unnið frábært starf. Eru þeim færðar bestu þakkir fyrir sitt ómetanlega framlag til SKB. Guðmundur, sem var viðstaddur fyrstu skóflustunguna, sagði að það hefði verið einstaklega ánægjulegt að taka þátt í verkefninu og að hann vonaðist til að í húsinu ætti félagsmönnum eftir að líða vel. Húsið verður reyst í sumarhúsalandi við Ketilsstaði í Holta- og Landsveit en lóðin var gefin félaginu af Guðmundi Jóhannsyni þegar söfnunin fór fram á Skjá einum. Þessa dagana er unnið að því að klára samning við Byggingafélagið Laska sem átti lægsta tilboð í verkið þegar það var boðið út í apríl en alls buðu átta verktakar í framkvæmdina. Vonast er til að samningagerðin klárist í þessari viku og að uppsláttur fyrir húsið geti hafist fyrir lok maí mánaðar. Það verður frábær áfangi fyrir félagsmenn í SKB þegar Hetjulundur verður tekinn í notkun sem verður vonandi á haustmánuðum og er það von allra sem að undirbúningi hafa staðið að húsið eigi eftir að veita fjölskyldum í SKB gott skjól frá raunum sínum.
Myndir frá "fyrstu skóflustungunni" er hægt að finna á myndasíðunni hér á heimasíðu SKB. |