| Á allra vörum |
|
Söluátakið "Á allra vörum" var til styrktar SKB á síðasta ári. Ennþá er til nokkuð af varaglossum hjá félaginu og eru þau seld með sérstökum sumarafslætti. Þú getur pantað DiorKiss varagloss á þessari síðu og er um tvenns konar pöntunarform að ræða. Annars vegar pöntunarform fyrir einstaklinga og hins vegar pöntunarform fyrir fyrirtæki. DiorKiss varaglossin kosta 1.500 krónur
Í tilefni af söfnunarátakinu ætlar tónlistarmaðurinn Magnús Eiríksson að gefa lagið Von til átaksins. Lagið er af nýútkomnum geisladiski Mannakorna og segir textinn allt sem segja þarf, því vonin er oft það eina sem fólk á sem berst við erfið veikindi eins og krabbamein. Það er að sjálfsögðu Pálmi Gunnarsson sem syngur þetta yndislega lag Magnúsar. Glæný geislaplata Mannakorna er til sölu hér á heimasíðu SKB, kostar 2.500 krónur og renna 1.000 krónur af hverjum disk beint í söfnunarátakið |